Skýrsla rannsóknarnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna

12.4.2014

Rannsóknarnefnd Alþingis um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, sem var skipuð í ágúst 2011 á grundvelli þingsályktunar frá 10. júní 2011, afhenti forseta Alþingis skýrslu sína 10. apríl 2014.

Hér má nálgast vefútgáfu skýrslunnar. Vefútgáfan er aðalútgáfa skýrslunnar.

Formaður nefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna var Hrannar Hafberg lögfræðingur, sem tók við formennsku 26. september 2012 af Sigríði Ingvarsdóttur héraðsdómara. Með honum í nefndinni voru Tinna Finnbogadóttir fjármálahagfræðingur og Bjarni Frímann Karlsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Rannsóknarnefnd Alþingis hélt fréttamannafund fimmtudaginn 10. apríl kl. 14 í Iðnó við Vonarstræti. Kynntar voru niðurstöður nefndarinnar um aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna í samræmi við þingsályktun Alþingis frá 10. júní 2011. Farið var yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar, þar á meðal starfs- og lagaumhverfi sparisjóðanna, útlán, fjárfestingar, stofnfjáraukningar, arðgreiðslur og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra.

Almenn umræða á Alþingi um skýrsluna hefst á þingfundi föstudaginn 11. apríl.

Til baka Senda grein