Þátttaka rannsóknarnefndar vegna snjóflóðs í Súðavík 16. janúar 1995 í málþinginu Ofanflóð 2025 5.-6. maí nk. og viðvera á Ísafirði og í Súðavík dagana á eftir

Meðlimir rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 verða meðal þátttakenda á málþinginu Ofanflóð 2025 um snjóflóð og samfélög sem fram fer á Ísafirði 5. og 6. maí nk. Nefndin verður svo áfram á Ísafirði og í Súðavík dagana á eftir, 7. og 8. maí, vegna starfa sinna.

Þau sem kynnu að vilja hitta og ræða við nefndina eða koma upplýsingum á framfæri við hana meðan á dvöl hennar á svæðinu stendur er vitaskuld velkomið að hafa samband í því skyni.

Upplýsingar um netfang og símanúmer nefndarinnar, ásamt frekari upplýsingum um skipan hennar og verkefni, er að finna hér á heimasíðu nefndarinnar .